Nýársmót Völsungs í blaki 2012
Í dag, laugardaginn 7. janúar er haldið hið árlega Nýársmót Völsungs í blaki. Mótið hófst kl. 9:00 og áætlað er að síðustu leikir hefjist kl. 18:00.
Í ár mæta 27 lið til leiks allt frá Siglufirði til Vopnafjarðar, tíu karlalið og sautján kvennalið. Spilað verður í þremur deildum hjá konunum og einni deild hjá körlunum.
Kíkið endilega við í Höllinni og fylgist með skemmtilegri keppni þar sem leikgleðin er í fyrirrúmi.
Sjoppa á staðnum með ljúffengum veitingum að hætti blakara :)
Gleðilegt Völsungsár!
www.volsungur.is
Styrktaraðilar


Goðinn - Skák
|
Leit


