Vel heppnuð þrettándagleði Umf. Gamans og alvöru
Þrettándagleði Ungmennafélagsins Gamans og alvöru, sem haldin hefur verið í um þrjátíu ár, fór fram á þrettándanum, 6. janúar. Óvenju margir voru samankomnir í Ljósvetningabúð þetta kvöld eða um 120 manns að sögn húsvarðar, Ólafs Ingólfssonar, en þarna er fólk á öllum aldri.
Samkoman hófst á því að kveikt var í bálkesti og stórglæsilegri flugeldasýningu í umsjón Björgunarsveitarinnar Þingey.
Sá háttur er hafður á að fólk kemur með kökur eða brauð og leggur á sameiginlegt hlaðborð, ungmennafélagið leggur til kaffi og te, djús og mjólk. Hlaðborðið var eins og á rausnarlegu sveitaheimili og greinilegt er að sveitungarnir leggja sig fram um að hafa þetta veglegt.
Þá er siður að vera með smákökusamkeppni sem ætluð er börnum og verðlaunagripurinn er stórt kökukefli. Vinningshafar skrifa nafn sitt á keflið með blýanti og síðan er farið ofan í skriftina með brennipenna. Sigurvegari í ár var Anton Karl Kristjánsson í Árlandi. Veitt voru verðlaun fyrir snyrtilegasta lögbýlið. Sigurður Haraldsson á Fellsenda fékk viðurkenninguna í ár.
Loks er spilað bingó og voru ágætir vinningar. Spilaðar voru um 20 umferðir en aðalvinning kvöldsins hlaut Hugrún Ólafsdóttir í Hlíð.
Frétt fengin af 641.is og þar má sjá fleiri myndir


|


