Umf. Einingin fær umhverfisstyrk Landsbankans
Landsbankinn veitti í gær 5 milljónum króna í umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans. Meðal styrkþega var Ungmennafélagið Einingin sem fékk styrk til að bæta aðgengi og stuðla að umhverfisvernd við náttúruperlurnar, Aldey og Aldeyjarfoss sem laða stöðugt að fleiri ferðamenn.
Að sögn Sigurlínu Tryggvadóttur formanns Umf. Einingarinnar var byrjað fyrir tveimur árum að bæta aðgengi að fossunum að austan en þangað var aðeins torfær leið sem nú hefur verið endurbætt. Einnig er búið að merka gönguleið og er ætlunin í sumar að bera ofan í gönguleiðina og setja upp skilti.
Nánar um styrkveitinguna má sjá hér.
Styrktaraðilar


Goðinn - Skák
|
Leit


