Ýmislegt á döfinni hjá frjálsíþróttafólki í byrjun árs
Það er ýmislegt á seyði hjá frjálsíþróttafólki í byrjun árs. Þetta kemur fram á síðunni 123.is/hsth
Helgina 20. - 21. janúar verða æfingarbúðir á Laugum í umsjón Bróa þjálfara. Stefnt er að þær byrji seinnipartinn á föstudeginum þann 20. og þeim ljúki seinnipartinn þann 21. Nánar um æfingarbúðirnar síðar.
Helgina 28. - 29. janúar verður Stórmót ÍR í Reykjavík. Mótið hefst kl. 9:00 á laugardeginum og því lýkur upp úr miðjum degi á sunnudeginum. Það virðist vera ágætur áhugi hjá krökkunum að vera með og við hvetjum alla til að mæta á þetta fyrsta stórmót ársins. Það er verið að skoða að leigja rútu fyrir mannskapinn og gista saman á Farfuglaheimilinu. Þeir sem ætla að fara skulu láta vita sem fyrst á æfingu hvort þeir vilji vera með í rútu og/eða gista á Farfuglaheimilinu. Nánar um ferðatilhögun síðar.
Helgina 4. 5. febrúar verður Meistaramót 15-22 ára innanhúss haldið í Reykjavík og helgina 25. - 26. febrúar verður Meistaramót 11-14 innanhúss haldið, einnig í Reykjavík. Nánar um þessi mót síðar.
Eins og þið sjáið þá er nóg um að vera á næstunni.


|


