Nýársmót Völsungs í blaki
Nýársmót Völsungs í blaki fór fram í Íþróttahöllinni á Húsavík sl. laugardag.
Alls mættu 27 lið til leiks, 8 lið í karlaflokki og 19 lið í kvennaflokki en þar var spilað í þremur deildum.
Liðin komu frá Siglufirði, Dalvík, Akureyri, Reykjadal, Mývatnssveit, Kópaskeri, Vopnafirði og fimm lið frá Völsungi.
Mótið hófst klukkan 9 um morguninn og voru leikar fjörugir og mörg skemmtileg tilþrif sáust hjá keppendum. Síðustu leikir voru spilaðir kl. 19:00. Að móti loknu komu flestir keppendur saman á Sölku og fögnuðu góðum degi.
Mynd: Sigurlið Völsungs í 2. deild kvenna.
Úrslit mótsins voru eftirfarandi:
Í karlaflokki:
1. KA
2. Völsungur
3. Snörtur Kópaskeri
Í 1. deild kvenna:
1. Eik
2. Völsungur A
3. Skautar A
Í 2. deild kvenna:
1. Völsungur C
2. Súlur A
3. Skautar B
Í 3. deild kvenna (byrjendur):
1. Súlur
2. Völsungur
3. Krákurnar Akureyri
Blakdeild Völsungs þakkar öllum keppendum og gestum fyrir skemmtilegan dag og þá aðstoð sem þeir veittu við dómgæslu og annað á mótsdeginum.
Styrktaraðilar mótsins voru Ölgerðin, Olís, Samkaup-Úrval og Lyfja og sendum við þeim bestu þakkir fyrir.
Með blakkveðju, Jóna Matt.
Frétt og mynd: www.640.is


|


