Líf í blakinu
Öflugt blaklíf er á Húsavík og víðar á sambandssvæði HSÞ. Fjögur kvennalið og eitt karlalið frá Völsungi, karla- og kvennalið frá Mývetningi, karlalið frá Umf. Snerti á Kópaskeri og kvennalið úr Reykjadal tóku þátt í nýársmóti Völsung, sem sagt er frá hér fyrir neðan.
Lið frá Völsungi hafa tekið þátt í tveimur öðrum hraðmótum á Norðurlandi í vetur og þrjú mót til viðbótar eru framundan fram að Öldungamótinu í blaki. Eitt af þessum þremur hraðmótum heldur Völsungur þann 17. mars. Öldungamótið verður haldið á Tröllaskaga, þ.e. á Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík í lok apríl. Þar mun Völsungur eiga kvennalið í 2., 3., 5., 10. og 12. deild.
Einnig á Völsungur tvö kvennalið í Norðurlandsmóti í blaki, sem leikið er í tveimur umferðum.


|


