Hafdís Sigurðardóttir valin Suður-Þingeyingur ársins 2011
Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona frá Tjarnarlandi í Þingeyjarsveit varð hlutskörpust í vali lesenda 641.is á Suður-Þingeyingi ársins 2011, sem lauk kl 13:13 í dag. Hafdís náði góðum árangri í langstökki á árinu, innanlands sem utan og er fremsta frjálsíþróttakona Þingeyinga í dag. Þetta kemur fram á vefnum 641.is og samtali við Hafdísi sagðist hún vera ákaflega ánægð með valið og það væri henni hvatning til frekari afreka.
Sjá nánar á 641.is
Styrktaraðilar


Goðinn - Skák
|
Leit


