Góður aðalfundur Umf. Langnesinga
Aðalfundur Umf. Langnesinga var mjög vel sóttur, en hann var haldinn 8. janúar sl.
Á fundinum voru hátt í 50 manns, ungir sem aldnir og ræddu mál ungmennafélagsins á breiðum grundvelli. Fram kom í skýrslu stjórnar að starfsemi UMFL hefur sjaldan eða aldrei verið jafn blómleg og það stendur ekkert annað til að bæta enn frekar í á árinu 2012. Auk æfinga í knattspyrnu og frjálsum íþróttum var boðið upp á leikjanámskeið í sumar og sl. haust var settur á stofn afreksíþróttaskóli sem hefur notið mikilla vinsælda. Félagið stóð fyrir hátíðahöldum á þjóðhátíðardaginn og stóð fyrir ýmsum fjáröflunum. Fjárhagur félagsins er góður.
Á fundinum var m.a. kynnt ný stefna UMFL í eineltismálum, sem og nýjar siðareglur félagsins. Ýmis verkefni eru framundan hjá félaginu, sem gaman verður að fylgjast með. Kjörin var ný stjórn á fundinum en hana skipa:
Sölvi Steinn Alfreðsson, formaður
Guðmundur Jóhannsson, varaformaður
Þorsteinn Ægir Egilsson, gjaldkeri
Helgi Mar Árnason, ritari
Oddný Kristjánsdóttir, meðstjórnandi
Varamenn eru Agnar Jónsson og Jóhann Guðmundsson.


|


