Gestamót Goðans haldið í fyrsta sinn
Goðinn stendur þessa dagana fyrir lokuðu æfingamóti í S-V goðorði félagsins. Mótið hófst 12. janúar og stendur til 23. febrúar. Teflt er einu sinni í viku, 7 umferðir alls, og er mótið m.a. hannað til upphitunar fyrir lokaátökin í Íslandsmóti skákfélaga í mars.
Um er að ræða langsterkasta mót sem Goðinn hefur staðið að til þessa. Til leiks eru mættir nokkrir af öflugustu skákmönnum Goðans ásamt stigaháum og grjóthörðum boðsgestum frá öðrum skákfélögum. Meðal keppenda eru stórmeistari, þrír alþjóðlegir meistarar og fimm Fidemeistarar ásamt nokkrum Íslandsmeisturum og fleiri sigurvegurum kunnra skákmóta sem eru til alls líklegir.
Sérstaklega er ánægjulegt að nokkrir af hinum bráðefnilegu öðlingum eldri kynslóðarinnar taka þátt. Þar má nefna snillingana Gunnar Gunnarsson, Jónas Þorvaldsson og Harvey Georgsson að ógleymdum okkar manni, Birni Þorsteinsssyni.
Goðinn býður gesti sína velkomna og óskar keppendum öllum ánægjustunda og aukinnar þekkingar á leyndum dómum hinnar göfgu listar.
Frétt fengin af heimasíðu Goðans


|


