Ársþing í undirbúningi
Eins og áður hefur komið fram verður ársþing HSÞ haldið sunnudaginn 26. febrúar 2012. Þingið verður haldið í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn og hefst kl: 10:00.
Rétt til setu á þinginu eiga 99 fulltrúar frá 31 aðildarfélagi HSÞ. Auk þess er kveðið á um í lögum HSÞ að allir félagar innan UMFÍ og ÍSÍ hafi málfrelsi og tillögurétt á ársþingi, en kjörnir fulltrúar einir atkvæðisrétt.
Á þinginu verður lýst kjöri íþróttamanns HSÞ og íþróttamanna einstakra greina.
Aðildarfélög hafa samkvæmt venju verið beðin að skila til HSÞ skýrslu um helstu verkefni á nýliðnu ári, sem mun birtast í ársskýrslu HSÞ sem kemur út á þinginu. Skýrslunum þarf að skila eigi síðar en 10. febrúar. Mynd úr starfinu má gjarnan fylgja og ágætt er að miða við að skýrslan taki hámark eina A4-síðu.
Margra leiðir munu liggja á þingið og því er fólk hvatt til að sameinast í bíla. Það er bæði ódýrara, umhverfisvænna og skemmtilegra!


|


