Vorfjarnám 1. stigs í þjálfaramenntun
ÍSÍ auglýsir vorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ sem hefst mánudaginn 6. febrúar næstkomandi. Námið er öllum opið sem lokið hafa grunnskólaprófi og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Engar staðbundnar lotur eru í náminu heldur fer það alfarið fram á netinu. Alls er um 8 vikna nám að ræða og skila nemendur verkefni vikulega og taka auk þess tvö krossapróf. Námið jafngildir ÍÞF 102-4 í framhaldsskólum og er þar með metið til eininga inn í þá skóla.
Skráning er á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 514-4000. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang og netfang. Skráningarfrestur er til fim. 2. febrúar.
Þátttökugjald er kr. 24.000.- og eru þá öll námskeiðsgögn innifalin.
Allir sem ljúka náminu fá skírteini og þar með réttindi sem aðstoðarþjálfarar yngri iðkenda og auk þess rétt til að sækja 2. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ.
Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ veitir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 460-1467.


|


