Reiðskemma Grana og Þjálfa
Þegar ekið er suður frá Húsavík blasir við til hægri handar mannvirki mikið. Þetta er reiðskemma sem stendur í Saltvíkurlandi skammt sunnan Húsavíkur og brátt verður tilbúin til notkunar. Skemman er í eigu hestamannafélaganna Grana og Þjálfa, og hafa þau stofnað hlutafélag um byggingu og rekstur hennar; Grána ehf.
Ekki þarf að efa að reiðskemman verður mikil lyftistöng í starfi félaganna. En auk þess verður hún til margra annarra hluta nytsamleg en reiðmennsku því skemman getur hentað undir aðra íþróttaiðkun og jafnvel samkomuhald af ýmsu tagi.
Aðalfundur Grána ehf var haldinn á dögunum og má lesa fundargerðina hér á heimasíðu Hestamannafélagsins Grana.
Styrktaraðilar


Goðinn - Skák
|
Leit


