Frjálsíþróttaráð HSÞ fær bikara að gjöf
Þær Mjöll Matthíasdóttir og Rósa Ösp Ásgeirsdóttir, stjórnarkonur í Kvenfélagasambandi Suður-Þingeyinga, komu færandi hendi á frjálsíþróttaæfingu HSÞ í höllinni á Húsavík í vikunni. Þær höfðu meðferðis tvo stóreflis bikara sem þær afhentu sambandinu að gjöf.
Að sögn Mjallar er þarna í raun um endurnýjun á bikurum að ræða. Frá árinu 1985 hafa verið veittir bikarar fyrir besta árangur drengja og stúlkna á Sumarleikum HSÞ og gaf MSKÞ stúlknabikarinn en Kvenfélagasambandið drengjabikarinn.
Þessir bikarar voru ef svo má segja orðnir “fullir” s.l. sumar, þ.e. ekki var pláss til að grafa nöfn fleiri sigurvegara á þá, þannig að þörf var nýrra bikara sem þær Mjöll og Rósa voru að afhenda nú og eru að þessu sinni báðir gefnir af Kvenfélagasambandinu, enda Mjókursamlaginu ekki lengur til að dreifa.
Ágústa Pálsdóttir tók við bikurunum fyrir hönd HSÞ og afhenti þá síðan sigurvegurum síðustu Sumarleikja til varðveislu fram að þeim næstu, þeim Elvari Baldvinssyni og Dagbjörtu Ingvarsdóttur.
Frá þessu var greint í Skarpi rétt fyrir jól, og myndirnar á Skarpur einnig.
Héraðssamband Þingeyinga þakkar Kvenfélagasambandinu kærlega fyrir góðan stuðning.


|


