Íslenski skákdagurinn til heiðurs Friðriki Ólafssyni
Skáksamband Íslands, Skákakademia Reykjavíkur og Skákfélagið Goðinn kynna íslenska skákdaginn.
Íslenski skákdagurinn verður haldinn um allt land fimmtudaginn 26. janúar – á afmælisdegi fyrsta stórmeistara Íslendinga, Friðriks Ólafssonar.
Á íslenska skákdeginum verður teflt um allt Ísland, til sjávar og sveita. Taflfélög, skákklúbbar, grunnskólar, fyrirtæki og fleiri sameinast um að það verði teflt sem víðast á Íslandi og sem flestir landsmenn á öllum aldri setjist að tafli.
Er það von og vilji forvígismanna skákhreyfingarinnar að þeir fjölmörgu og kraftmiklu aðilar sem standa að skákstarfi í landinu haldi einhvern skemmtilegan skákviðburð þennan merkisdag.
Skákfélagið Goðinn í Þingeyjarsýslu verður með opið hús af þessu tilefni í félagsaðstöðu sinni í Framsýnarsalnum að Garðarsbraut 26 á Húsavík kl 20:30 þann 26. janúar nk.
Þangað verður Þingeyingum boðið að koma og kynna sér starfsemi skákfélagins Goðans. Gestum verður boðið að tefla við skákmenn Goðans, horfa á myndasýningu af félagsstarfinu og þiggja veitingar í boði félagsins.


|


