Íslandsgangan 2012
Íslandsgangan á skíðum er fólgin í þátttöku í allt að sex sjálfstæðum almenningsgöngum á skíðum á sama vetri. Ljúka þarf þremur göngum til að teljast með í lokaúrslitum, en einungis lengsta vegalengd í hverri göngu telst með í Íslandsgöngunni. Hér er heimasíða Íslandsgöngunnar: http://islandsgangan.blogcentral.is/
Íslandsgangan hefst í byrjun febrúar á Akureyri og lýkur með Fossavatnsgöngunni á Ísafirði í lok apríl. Allir geta fundið sér vegalengd við hæfi og viljum við hvetja alla til að taka þátt í göngunum.
Og þessu tengt: Á heimasíðu skíðagöngudeildar Völsungs stendur þetta í dag: Búið að troða frá Hóli og uppá Grásteinsheiði.
Dagskrá Íslandsgöngunnar 2012
11. -12. febrúar: Skíðastaðagangan, Akureyri www.skidi.is
25. -26. febrúar: Fjarðagangan, Ólafsfirði http://skiol.fjallabyggd.is/
03.-04. mars: Bláfjallagangan, Reykjavík www.skidagongufelagid.blog.is 5 km, 10 km, 20 km
17.-18. mars: Strandagangan, Hólmavík www.strandagangan.blogcentral.is 1 km, 5 km, 10 km, 20 km
14.-15. apríl: Buchgangan/Orkugangan, Húsavík www.volsungur.is/skidaganga 1 km, 5 km, 10 km, 20 km, 60 km
28.apríl - 29. apríl: Fossavatnsgangan, Ísafirði www.fossavatn.com 7 km, 10 km, 20 km, 50 km


|


