Hafdís með góðan árangur um helgina
Hafdís Sigurðardóttir, UFA, vann sigur í langstökki kvenna á Reykjavík International Games sem fram fór um helgina. Bætti hún bæði sinn persónulega árangur og mótsmetið í greininni þegar hún stökk 6,14 m. Hafdís keppti einnig í 60 m hlaupi og varð í 3. sæti.
Hafdís tilkynnti félagaskipti úr Umf. Bjarma (HSÞ) yfir í UFA snemma í janúar sl. Að sögn Hafdísar var þessi ákvörðun um félagaskipti henni mjög erfið og hafði hún hugsað þetta vel og lengi áður en hún ákvað að skipta um félag. Hafdís telur sig betur setta hjá UFA enda stundar hún æfingar á Akureyri ásamt öðru frjálsíþróttafólki í UFA. Eins telur hún sig betur setta með að afla styrkja til þess að stunda sína íþrótt hjá UFA. Hún vildi þó taka það skýrt fram að hún sé og verði alltaf Þingeyingur og þakkar þeim fyrir sem hafa styrkt hana í gegnum tíðina hjá HSÞ.
Hafdís var þó ekki eini keppandi Þingeyinga á mótinu því tveir keppendur frá Umf. Eflingu í Reykjadal kepptu í bogfimi á leikunum. Guðmundur Smári Gunnarsson varð í öðru sæti í bogfimi og Þorsteinn Aðalsteinsson varð í 8. sæti á sínu fyrsta móti.
Sjá nánar hér
Frétt fengin af www.641.is


|


