Nýjustu fréttirnar |
Bikarglíma Íslands um helgina
Bikarglíma Íslands fer fram á laugardaginn, 28. janúar í íþróttahúsi Kennaraháskólans og eru 29 keppendur skráðir til leiks. Þar á meðal eru þeir Bjarni Þór Gunnarsson, Pétur Þórir Gunnarsson og Einar Eyþórsson úr Mývetningi. Tveir keppendur að auki eru upprunnir í Mývatnssveit; þeir Pétur Eyþórsson og Ólafur Helgi Kristjánsson sem báðir keppa fyrir Ármann.Þrír glímukóngar og þrjár glímudrottningar mæta til leiks í Bikarglímunni þannig að ljóst má vera á öllu að um mjög sterkt mót er að ræða.
Sjá nánar á www.glima.is
Styrktaraðilar


Goðinn - Skák
|
Leit


