Nýjustu fréttirnar |
Héraðsmót HSÞ í knattspyrnu 12 ára og yngri innanhúss
Héraðsmót HSÞ í knattspyrnu 12 ára og yngri innanhúss verður haldið á Húsavík sunnudaginn 5. febrúar 2012.
Keppt verður í 5. flokki, (börn fædd ’00 og ´01) 6. flokki (börn fædd ´02 og ´03) og 7. flokki (börn fædd ´04 og ´05)
Keppt er í blönduðum liðum. Leyfilegt er að keppa upp fyrir sig.
Mótið hefst kl 10:00 og stendur fram eftir degi eins og þörf verður á miðað við fjölda leikja. Þó verður stefnt að því að klára mótið fyrir kl 17:00 Miðað verður við að leikir standi í 15 mín.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi þriðjudaginn 31. janúar á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 895-3302.
Þátttökugjald er 1.500 krónur á keppanda. Innifalið er mótsgjald og glaðningur í lok móts. Þátttökugjaldið greiðist í síðasta lagi við upphaf móts.


|


