Jöfn og spennandi Bikarglíma
Bikarglíma Íslands fór fram í gær og er óhætt að segja að keppnin hafi verið jöfn og spennandi í flestum flokkum.
Í opnum flokki karla sigraði Pétur Eyþórsson Glímufélaginu Ármanni eftir spennandi úrslitarglímur við frænda sinn Bjarna Þór Gunnarsson Mývetningi en þess má geta að þeir eru í 1. og 2. sæti styrkleikalista glímumanna. Bræður þeirra, Pétur Þórir Gunnarsson og Einar Eyþórsson urðu í 3. og 4. sæti.
Í opnum flokki kvenna var ekki síður jöfn og spennandi keppnin en þar sigraði Marín Laufey Davíðsdóttir HSK eftir bráðfjöruga úrslitaviðureignir við Guðbjörtu Lóu Þorgrímsdóttur GFD en þær stöllur eru einmitt í 1.og 2.sæti á styrkleikalista kvenna.
Öll önnur úrslit má svo sjá hérna:


|


