Góður hópur og góður árangur á Stórmóti ÍR
Stórmót ÍR í frjálsíþróttum var haldið í 16. sinn um helgina. Mótið sem fór fram í Laugardalshöllinni hefur unnið sér sess sem langstærsta opna innanhússmótið frjálsum sem haldið er árlega hér á landi. Keppt er í aldursflokkum frá 8 ára og yngri upp í karla og kvennaflokk. Þátttakendur voru um 780 frá 23 félögum víðs vegar að af landinu.
Meðal keppenda voru 20 krakkar frá HSÞ á aldrinum 11 – 17 ára og komu þau víða að af sambandssvæðinu. Farið var í rútu frá Húsavík á föstudaginn og gekk ferðin hægt enda veður vont. Voru þau níu og hálfan tíma á leiðinni. En það hafði ekki áhrif á árangurinn því öll stóðu þau sig með sóma. Þau héldu heim á leið síðdegis í dag með 14 verðlaun í farteskinu, þrjú gull, sjö silfur og fjögur brons. Margir bættu árangur sinn og góður andi ríkti í hópnum. Úrslitin má sjá hér á heimasíðu FRÍ.


|


