Styrkir úr Æskulýðssjóði
Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.
Við úthlutun úr Æskulýðssjóði fyrir árið 2012 verður lögð áhersla á umsóknir frá æskulýðsfélögum og æskulýðssamtökum um verkefni er vinna gegn einelti, fræðslu um mannréttindi, þjálfun þeirra er vinna með börnum og ungmennum í félagsstarfi og á samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
2. Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
3. Nýjungar og þróunarverkefni.
4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni. Nánari upplýsingar má finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins www.menntamálaráðuneyti.is. Næsti umsóknarfrestur er 1. febrúar 2012.


|


