Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ
Lífshlaupið verður ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 1. febrúar n.k. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag.
Inn á vef Lífshlaupsins, www.lifshlaupid.is er hægt að velja um þrjár leiðir.
-
Ef þú ert 15 ára og yngri getur þú tekið þátt í hvatningarverkefni fyrir grunnskóla.
-
Ef þú ert 16 ára og eldri getur þú tekið þátt í vinnustaðakeppni.
-
Allir geta tekið þátt í einstaklingskeppni þar sem þátttakendur geta skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.
Skrá má alla hreyfingu niður en hún þarf að ná minnst 30 mínútum samtals hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals hjá börnum og unglingum til að fá dag skráðan. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Vinnustaðir, skólar og einstaklingar á sambandssvæði HSÞ eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega, skapa skemmtilega stemmingu og efla félagsandann.
Þín heilsa - Þín skemmtun
Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
í síma: 514-4000.


|


