Íslenski skákdagurinn haldinn hátíðlegur hjá Goðanum
Síðastliðið fimmtudagskvöld var Skákfélagið Goðinn með opið hús í tilefni af islenska skákdeginum sem haldinn var hátíðlegur um allt land á fimmtudaginn. Opna húsið hófst kl 20.30 og lögðu þó nokkrir gestir leið sína í félagsaðstöðu Goðans í Framsýnarsalnum á Húsavík. Goðinn bauð upp á myndasýningu af starfi félagsins undanfarin ár og var meðal annars sýndar myndir frá því þegar Boris Spassky heimsótti Húsavík árið 1978 og tefldi fjöltefli í troðfullum salnum á Hótel Húsavík.
Einnig gátu gestir á íslenska skákdeginu teflt við félagsmenn Goðans og nýttu margir sé það. Jóhanna Kristjánsdóttir formaður HSÞ var þar á meðal. Goðinn bauð uppá kaffi, djús og kanilsnúða sem formaður hafði bakað í tilefni dagsins.
3. umferð Gestamóts Goðans var svo tefld í suð-vestur goðorði Goðans á sama tíma.
Nánar á heimasíðu Goðans.


|


