Aðalfundur Goðans á mánudagskvöld
Aðalfundur skákfélagins Goðans verður haldinn annað kvöld, mánudaginn 6. febrúar kl 20:30 í Framsýnarsalnum að Garðarbraut 26 á Húsavík. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.Það er líflegt starf í Goðanum og gaman hjá skákmönnum. Fyrir nokkru birtist á heimasíðu Goðans frétt af því að á íslenska skákdeginum um daginn var nýjustu meðlimum Goðans afhentir Goða-bolir eins og allir félagsmenn fá, að undangenginni læknisskoðun, þegar þeir ganga í félagið. Júlíus og Sigurgeir stóðust læknisskoðun með glans.
Á myndinni er Hermann formaður að afhenda Sigurgeir Stefánssyni bolinn. Ekki náðist mynd af því þegar Júlíus fékk sinn bol.
Styrktaraðilar


Goðinn - Skák
|
Leit


