MÍ 15 - 22 ára í frjálsum
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15-22 ára var haldið í Laugardagshöll 4. og 5. febrúar s.l. Þar átti HSÞ 8 keppendur. Það voru þau Dagbjört, Hjörvar og Snæþór sem kepptu í flokki 16-17 ára og Auður, Brynjar, Elvar, Freyþór og Kristín sem kepptu í flokki 15 ára. Árangur þeirra var með miklum ágætum og náði liðið öðru sæti í stigakeppni 15 ára pilta. Í heildarstigakeppninni urðu þau í 7. sæti og komu heim með 2 gull, 6 silfur, 4 brons og nokkrar bætingar.Myndin sýnir Auði Gauksdóttur á verðlaunapalli en hún varð Íslandsmeistari í hástökki 15 ára stúlkna. Elvar Baldvinsson varð Íslandsmeistari í 60 m grindahlaupi 15 ára pilta.
Nánar á heimasíðu frjálsíþróttaráðs og fleiri myndir á 641.is en þaðan er myndin fengin.
Styrktaraðilar


Goðinn - Skák
|
Leit


