Ásbyrgismót um helgina
Þó hið gamalgróna Ásbyrgismót sé ekki á vegum HSÞ heldur félaganna sem áður mynduðu UNÞ, birtum við hér dagskrá mótsins, en það er haldið nú um helgina 13. - 15. júlí:
Föstudagur
Kl. 17:30 Pollamót eldri (11-12 ára)
Kl. 20:00 Fótbolti, unglingaflokkur (13-16 ára)
Verðlaunaafhending að lokinni keppni.
Laugardagur
Kl. 10:00 Pollamót yngri (10 ára og yngri)
Kl. 11:30 Verðlaunaafhending fyrir pollamót.
Kl. 12:30 Frjálsíþróttakeppni hefst.
Kl. 17:30 Landverðir í Ásbyrgi með ratleik.
Kl. 18:30 Sameiginlegt grill orðið heitt.
Kl. 20:00 Kvöldvaka. Hoppukastalar og fleira
Sunnudagur
Kl. 10:00 Frjálsíþróttakeppni hefst.
Kl. 12:45 Verðlaunaafhending fyrir frjálsar – mótslit
Mótsnefndin leggur áherslu á að mótið er áfengislaust. Ró skal vera komin á svæðið kl. 24:00 svo að ungir keppendur og aðrir fái frið og góðan nætursvefn.
Hundaeigendur eru beðnir að skilja hundana eftir heima.
Bílastæði fyrir mótsgesti eru við tjaldstæði eða Gljúfrastofu en ekki inni í botni af tillitsemi við aðra gesti Ásbyrgis um þessa háannahelgi. Þetta kemur ekki að sök því rúta gengur reglulega inn í botn Ásbyrgis og til baka.





