Vímuvarnasamningur og áfengissala
Íþrótta- og ungmennafélögin hafa haldið uppi öflugu forvarnarstarfi í gegnum árin. Haldið vímulausar hátíðir og mót, auk þess að halda uppi öflugu félagsvarnastarfi öllum til góða. Íþrótta- og ungmennafélgashreyfingin hefur stuðlað að öflugum forvörnum í gegnum tíðina og alið af sér fjöldann allan af einstaklingum sem hafa látið áfengi, tóbak og aðra vímugjafa vera á uppvaxtarárum sínum sem og í starfi síns félags.
Völsungur hefur verið í forsvari með að gera vímuvarnasamning við knattspyrnuiðkendur sína og er það vel. Völsungur hefur verið fenginn til að kynna þetta flotta forvarnaátak fyrir öðrum íþrótta- og ungmennafélögum svo þau geti tekið það upp og gert slíkt hið sama. Við Þingeyingar höfum verið forsprakkar á ýmsum sviðum og státum okkur af sjálfstæði og frumkvöðlun.
Það skýtur því skökku við þegar lagt hefur verið við bæjarráð Norðurþings að ,,skammtíma vínveitingaleyfi á Hafnarstétt á Mærudögum verið takmarkað við þá rekstraraðila sem nú þegar eru á svæðinu, en auk þeirra fái Völsungur eitt slíkt leyfi (Skarpur, 26. tbl, 11. árg)“.
ÍSÍ og UMFÍ hafa farið stórum í að hvetja íþróttahreyfinguna til að virða það öfluga starf sem fram fer innan hreyfinganna með því að halda vímulausa viðburði, auk þess að selja ekki áfengi, tóbak né önnur vímuefni í fjáröflunarskyni. Slíkt sæmir ekki starfi íþróttahreyfingarinnar.
Sagt er að börnin læri það sem fyrir þeim er haft og er það hverju orði sannara. Hvað læra börnin af því að skrifa undir vímuvarnasamning þegar félagið þeirra selur svo áfengi í sínu nafni? Við sem eldri erum verðum að stíga í takt við það sem við segjum og gerum. Við getum ekki haldið úti öflugu forvarnastarfi ef við ætlum líka að selja áfengi. Verður kannski líka selt tóbak í bás Völsungs á Mærudögum?
Það er klárt að við getum ekki samþykkt að íþróttafélag standi fyrir sölu á áfengi fyrir framan öll þau ungmenni sem horfa upp til síns félags og jafnvel eru búin að skrifa undir vímuvarnasamning félagsins. Þó svo vímuvarnasamningurinn væri ekki til staðar þá stangast það verulega á við hið flotta starf sem fram fer innan Völsungs að selja áfengi á Mærudögum. Það eru margar aðrar leiðir í fjáröflun og ætti Völsungur að ganga fremstur í flokki með góðu fordæmi og gera allt sem í sínu valdi stendur til að halda úti öflugu forvarnastarfi þar sem áfengi og tóbak er ekki selt undir merkjum félagsins.
Jóhanna S. Kristjánsdóttir
Formaður HSÞ
| Frétta og upplýsingasíða fyrir skákfélagið Goðann-Máta sem er með höfðuðstöðvar í Þingeyjarsýslu. |
|





