Bridds á Fosshóli
Héraðssveitakeppni HSÞ í bridds var haldin á Fosshóli föstudagskvöldið 5. mars síðastliðinn. Til leiks voru mættar 6 sveitir að þessu sinni
sem er heldur færra en unanfarin ár. Spiluð voru 6 spil við hverja sveit og allir við alla sem gera samtals 30 spil. Sveit Þórólfs Jónasson bar sigur úr bítum með 104 stig en sveit Árna Garðars Helgasonar varð í öðru sæti með 78 stig. Fast á eftir kom sveit Sigurðar Björgvinssonar með 77 stig í þriðja sæti.
Styrktaraðilar


Leit


