Veðrið er verulega að stríða okkur þennan veturinn - því nú þarf Frjálsíþróttaráð HSÞ að fresta sínum aðalfundi aftur. Fundurinn átti að vera í kvöld á Grænatorgi, en er frestað um óákveðinn tíma.
Frjálsíþróttaskólinn var haldinn dagana 11.-15. júní á Laugu, í annað sinn á vegum Frjálsíþróttaráðs HSÞ. Af starfssvæði HSÞ tóku þátt alls 15 krakkar á aldrinum 11 - 14 ára. Þetta var flottur hópur krakka og gekk allt mjög vel. Frjálsíþróttaæfingar voru tvisvar á dag auk þess sem farið var í sund, fótbolta, útileiki og fleira. Þjálfarar voru Brói, Selmdís og Andri Hnikarr - en foreldrar skiptust á að sjá um matarundirbúning og viðveru. Síðasta kvöldið var farið á pizzahlaðborð í Dalakofann. Veðrið lék við hópinn, sólríkt og þurrt en stundum aðeins kalt þegar líða tók á kvöldið.
Sumarleikar HSÞ 2012
Sumarleikarnir voru haldnir á Laugum helgina 23. og 24. júní. Leikarnir tókust vel og veðrið var með ágætum - sól og gola fyrri daginn en sólarlítið seinni daginn. Dagskráin var að mestu á áætlun og allir lögðu sitt af mörkum til að gera þetta að skemmtilegu móti. Margir nýttu sér aðstöðuna og gistu á tjaldsvæðinu á Laugum. Í tengslum við Sumarleikana var á laugardagskveldinu í fyrsta sinn keppt í héraðsmóti í stafsetningu og upplestri. Tilefnið var að á næsta Unglingalandsmóti verður keppt í þessum sömu starfsgreinum.
Á leikunum tóku þátt 136 keppendur frá 7 félögum; 35 frá HSÞ, 41 frá UFA, 17 frá UMSE, 28 frá UMSS, 12 frá ÚÍA og 1 Ármanni og 1 ÍR. Keppendur okkar hjá HSÞ stóðu sig með mikilli prýði, og tóku fleiri yngri og óreyndari keppendur þátt en oft áður og stóðu sig vel. Margir bættu árangur sinn en enginn héraðsmet féllu að þessu sinni. Í hlut keppenda HSÞ komu 21 gull, 22 silfur og 18 brons. Vel af sér vikið.
Við þökkum öllum sem mættu á Lauga fyrir góða helgi, og sérstaklega þökkum við þátttakendum fyrir drengilega keppni og sjálfboðaliðum fyrir vel unnin störf, án þeirra gengur þetta ekki.
Frjálsíþróttaráð HSÞ
HSÞ þakkar ÖLLUM sem lögðu sitt af mörkum - þátttakendum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og foreldrum.
Sumarleikar HSÞ í frjálsum íþróttum verða haldnir á Laugavelli dagana 23 og 24.júní 2012. Skráning keppenda fer fram á fri.is mótaforrit og lýkur skráningu á fimmtudagskvöldið 21.júní. Eftir það er aðeins hægt að senda skráningar í tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og kostar hver skráning 1000.- svo vinsamlegast komið ÖLLUM skráningum í tæka tíð.
Frí tjaldstæði við hliðina á vellinum og svo er frítt í sund fyrir 15 ára og yngri. Sjoppa á staðnum. Frítt í Bíó seinnipartinn á laugardag.
Frekari upplýsingar:
Haraldur
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
sími 898-3328
Friðrika
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
sími 894-7609
Dagana 11. - 15. júní í sumar verður Frjálsíþróttaskóli UMFÍ haldinn á Laugum í Reykjadal.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ er ætlaður ungmennum á aldrinum 11 – 18 ára. Skólinn er kjörið tækifæri til að efla sig í frjálsum íþróttum og kynnast öðrum ungmennum. Auk íþróttaæfinga verða ýmsar óvæntar uppákomur, kvöldvökur, gönguferðir og fleira skemmtilegt. Skólinn hefst á mánudegi og lýkur á föstudegi.
Innifalið í verði, kr. 17.000, er; gisting matur og kennsla.
Fyrsti aðalfundur frjálsíþróttaráðs HSÞ verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 26. apríl, á Grænatorgi í íþróttahöllinni á Húsavík og hefst fundurinn kl: 20:00.
HSÞ hvetur þau aðildarfélög, sem hafa frjálsíþróttir á sínum verkefnalista, til þess að senda sína réttkjörnu fulltrúa á aðalfundinn. Annars mega einnig mæta þeir sem hafa brennandi áhuga og vilja hafa áhrif til þess að efla frjálsíþróttastarfið í héraðinu.
Hafdís Sigurðardóttir var valin frjálsíþróttamaður HSÞ og íþróttamaður HSÞ fyrir árið 2011. Þar sem hún var fjarri góðu gamni á ársþingi HSÞ s.l. sunnudag, þá voru henni voru afhentir bikarar og blóm á frjálsíþróttaæfingu í Stórutjarnaskóla af Birnu Davíðsdóttur stjórnarmanni HSÞ. Hafdís er ekki bara sjálf að æfa af kappi, heldur þjálfar hún einnig góðan hóp í frjálsum íþróttum, börn á aldrinum 6-14 ára einu sinni í viku í Stórutjarnarskóla. Hún þakkaði vel fyrir sig þegar hún tók við viðurkenningunum og bað fyrir kveðju til ALLRA. Krakkarnir fögnuðu vel og innilega og klöppuðu mikið fyrir henni. Þau skoðuðu bikarana í krók og kring og fengu að prófa að lyfta bikar. Skemmtileg stund og án efa hvetjandi fyrir framtíðar íþróttastjörnur. Hafdís er flott fyrirmynd.
Meistaramót Ísland fór fram helgina 22. - 24. júlí í sumar. Hafdís Sigurðardóttir keppti fyrir hönd HSÞ og stóð sig verulega vel og er Héraðssambandinu til mikils sóma. Hafdís sigraði þrefalt; í 100m og 200m hlaupi og einnig í langstökki. Ekki skal það því koma okkur á óvart að Hafdís var með besta afrek mótsins í kvennaflokki, en hún hljóp 100m hlaupið á 11,96 sek., sem gefa 1020 stig. Í karlaflokki var það Kristinn Torfason í FH sem fékk flest stig fyrir 7.82m í langstökki. Því miður fæst þessi góði árangur þó ekki viðurkenndur, þar sem meðvindur mældist of mikill.
Annars var það lið FH sem sigraði nokkuð örugglega í stigakeppni Meistaramótsins, en liðið sigraði bæði stigakeppni í karla- og kvennaflokki. FH-ingar hlutu samtals 34.634 stig. ÍR sem varð í öðru sæti hlaut samtals 23.969 stig, en lið HSK/Umf. Selfoss varð í þriðja sæti með 20.129 stig.
Sumarleikar HSÞ 2011, sem haldnir verða 2. og 3. júlí á Laugum í Reykjadal, er stærsta frjálsíþróttamót sem haldið er á vegum HSÞ í sumar og getur verið hin besta fjölskylduskemmtun. Keppt er í fjölda greina í öllum aldursflokkum, en dagskrá mótsins má sjá á www.fri.is
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu Frjálsíþróttaráðs HSÞ 123.is/hsth.
Hafdís Sigurðardóttir félagi okkar í HSÞ var í landsliði Íslands sem keppti á Smáþjóðaleikum í Lichtenstein á dögunum. Þar keppti hún í 100 m hlaupi og langstökki. Hún bætti sig í báðum greinunum og það skilaði henni bronsi í langstökkinu. Glæsilegt! Sjáum hér frásögn Hafdísar af keppninni: 1. júní keppti ég í undanrásum í 100m hlaupi kvenna - var önnur í riðlinum á tímanum 12.26 sek sem hefði verið bæting, en vindurinn var aðeins of mikill eða +2.1m/s. En þessi tími kom mér inn í úrslit í sjötta og síðasta sæti inn. Úrslitin voru seinna um daginn í rigningu og kulda miðað við veður dagana á undan, bara ekta íslenskt veður. Hljóp úrslitin á 12.15 sek og vindur var +1.8m/s og löglegt hlaup - endaði í 6. sæti og bætti minn persónulega árangur úr 12.48 sek í 12.15sek. Keppti aftur 3. júní í langstökki, átti frábæra stökkseríu, endaði í 3. sæti með stökk uppá 6.09m (vindur +0,6m/s), lögleg bæting. 4. júní keppti ég í 4x100m boðhlaupi, hljóp annan sprett með íslensku sveitinni og fengum við brons, hlupum á 47.09 sek en Kýpur sveitin sem var í öðru sæti var á tímanum 47.08sek!
Nú er vorið komið og okkur ekkert að vanbúnaði að færa íþróttaæfingar út í ferska loftið. Frjálsíþróttaæfingar eru byrjaðar á Laugum og verða þær þar á mánudögum og miðvikudögum og byrja kl. 19:00. Sameinast verður um akstur frá Húsavík samkvæmt akstursskipulagi sem dreift verður til foreldra von bráðar. Framundan er svo sumarið með fullt af mótum.
Héraðsmót HSÞ í frjálsum íþróttum 18 ára og yngri var haldið í Íþróttahöllinni á Húsavík í gær. Keppendur voru rúmlega 50 frá Austra, Eflingu, Einingunni, Umf. Langnesinga, Umf. Leifi heppna og Völsungi auk gesta frá UMSE. Í mótslok fengu allir keppendur viðurkenningu fyrir þátttökuna. Á þessu móti voru auðvitað einhverjir að stíga sín fyrstu spor á keppnisvellinum og ekki að spyrja að því að margir bættu sig og komu sjálfum sér skemmtilega á óvart. Úrslit í stigakeppni félaganna urðu þannig: 1. sæti Völsungur 652 stig 2. sæti Umf. Austri 395 stig 3. sæti Umf. Langnesinga 174 stig 4. sæti Umf. Leifur heppni 116 stig 5. sæti Umf. Efling 39 stig 6. sæti Umf. Einingin 31 stig
Nánar er hægt að sjá útslitin á mótaforritinu á fri.is
Meistaramót Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum var haldið í Laugardagshöll síðustu helgina í febrúar. Ellefu keppendur frá HSÞ mættu til leiks og kepptu í hinum ýmsu greinum. Það voru þau Elvar, Brynjar, Freyþór, Auður, Brynja, Bjargey, Hlynur, Hafdís, Dagný, Eyþór og Arnhildur. Keppendur stóðu sig mjög vel og voru til fyrirmyndar í einu sem öllu. Þau unnu til sjö verðlauna og HSÞ varð í 8. sæti í stigakeppninni (af 18 liðum) með 135,5 stig. Þetta kemur fram á síðunni 123.is/hsth og þar má sjá myndir frá mótinu. Nánar um úrslitin má sjá á www.fri.is. Á meðfylgjandi mynd eru keppendur ásamt þjálfara sínum, Bróa. Auði vantar á myndina. Til hamingju með þetta krakkar!
Bikarkeppni FRÍ innanhúss var haldin í Laugardagshöll á laugardaginn, þann 19. febrúar s.l. Lið Norðurlands varð í öðru sæti í samanlögðu með 103,5 stig. Lið ÍR sigraði með 133 stig en lið HSK varð í þriðja sæti einnig með 103,5 stig. Þar sem Norðurland var með fleiri sigurvegara hlaut það annað sætið. Munaði þar mestu um sigur Hafdísar Sigurðardóttur í 60 m hlaupi og langstökki. Hafdís hljóp 60 m á 7,85 sek. og stökk 5,95 m í langstökki. Þorsteinn Ingvarsson keppti í langstökki og varð annar með stökk upp á 7,51 m. Selmdís Þráinsdóttir varð fimmta í stangarstökki með stökk upp á 2,70 og Auður Kristjánsdóttir varð 6 í 1500 m hlaupi en það hljóp hún á 5:16,75. Nánar um úrslitin má sjá á heimasíðu FRÍ www.fri.is
Þorsteinn Ingvarsson og Hafdís Sigurðardóttir kepptu á sterku frjálsíþróttamóti, Road to Göteborg 2013, sem fram fór í Gautaborg á laugardaginn. Þorsteinn sigraði í langstökki með 7,47 m. Hann gerði hárfínt ógild stökk upp á 7,80 m og 7,90 m, en lágmark á EM innanhúss sem fram fer í næsta mánuði í París er 7,75 m. Hafdís tvíbætti sig í 60 m hlaupi, hljóp á 7,88 í undanúrslitum og komst þar með í A-úrslit. Þar bætti hún sig aftur er hún hljóp á 7,86. Hún bætti um leið héraðsmetið sitt í tvígang. Hún varð svo í 2. sæti í langstökki með 5,71 en segist eiga mikið inni. Og skemmtilegt er að segja frá að þetta gerðist á afmælisdaginn hennar!
Næst á dagskrá hjá krökkunum er Bikarkeppni FRÍ um næstu helgi, þar sem Norðurland mætir með sameinað lið.
Meistarmót Íslands í frjálsíþróttum 15-22 ára var haldið í Laugardalshöll dagana 29-30. janúar sl. HSÞ átti þar þrjá keppendur, þau Dagbjörtu Ingvarsdóttur, Selmdísi Þráinsdóttur og Friðbjörn Braga Hlynsson sem keppti í einni grein. Stóðu þau sig öll með miklum ágætum. Dagbjört keppti í flokki stúlkna 15 ára en þar sigraði hún í langstökki og varð í öðru sæti í 60 m. grind. Selmdís keppti í flokki 18-19 ára. Hún varð i öðru sæti í 800 m. hlaupi og stangarstökki.
Keppendur frá HSÞ stóðu sig með mikilli prýði á Stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum sem haldið var dagana 22. og 23. janúar sl.
Í flokki 14. ára stúlkna sigraði Auður Gauksdóttir kúluvarp og hástökk og Jana Björg Róbertsdóttir varð þriðja í 800 m.
Í flokki 14. pilta varð Elvar Baldvinsson þriðji í hástökki og langstökki og annar í 60 m. grind. Brynjar Örn Arnarson varð annar í 60 m. hlaupi og þriðji í 200 m. hlaupi og 60 m. grind .
Í flokki 15. ára stúlkna sigraði Dagbjört Ingvarsdóttir langstökk og 60 m. grind.
Í flokki 15. ára pilta sigraði Hjörvar Gunnarsson 800 m. og varð í öðru sæti í 400 m. Snæþór Aðalsteinsson varð í öðru sæti í 800 m. og þriðja sæti í 400 m.
Í flokki kvenna 18 ára og eldri sigraði Hafdís Sigurðardóttir 60 m. hlaup og varð í öðru sæti í langstökki. Auður Kristjánsdóttir varð í þriðja sæti í 400 m. og 800 m. hlaupi.
Á nýbyrjuðu ári er vert að líta um öxl og gera upp liðið frjálsíþróttaár. HSÞ sendi keppendur á flest öll Meistaramót Íslands bæði utanhúss og innanhúss. Flestir keppendur voru á yngri meistaramótunum. En við búum vel að eiga góðar fyrirmyndir í "reyndari" keppendum samanber Þorstein Ingvarsson, Hafdísi Sigurðardóttir og Sigurbjörn Árna Arngrímsson. Þau kepptu á Meistaramótum Íslands utan- og innanhúss og unnu til verðlauna, oftar en ekki gullverðlauna. Þau kepptu í Evrópubikarkeppni í frjálsum sem haldið var á Möltu. Þar stökk Þorsteinn 7,79 í langstökki og náði þar með lágmarki til að keppa á EM í Barcelona. Frábærir fulltrúar HSÞ sem við getum verið stolt af. Bæði Þorsteinn og Hafdís hafa einnig verið dugleg að mæta á Héraðsmót HSÞ og því líka fyrirmyndir í nærmynd. Sigurbjörn Árna fengum við til að vera aðalþjálfara í Frjálsíþróttaskóla UMFÍ sem haldinn var á Laugum í vor...
Þorsteinn Ingvason og Hafdís Sigurðardóttir mættu fersk til leiks á Reykjavík International games í Reykjavík um síðustu helgi. Þau sigruðu bæði í langstökki, Þorsteinn með stökki upp á 7,65m og Hafdís með stökki upp á slétta 6 metra. Hún náði svo öðru sæti í 60 m hlaupi. Góð byrjun sem lofar góðu um framhaldið. Til hamingju Þorsteinn og Hafdís og gangi ykkur vel :) Þetta stökk Þorsteins er næstlengsta stökk Íslendings frá upphafi, en ekki vantaði nema 17 cm uppá að bæta þann árangur. Þorsteinn er með 19. besta árangurinn í langstökki á árinu á heimslistanum, sem er einnig 10. besti árangurinn í Evrópu og sá besti á Norðurlöndum í karlaflokki. Þorsteinn æfir nú af kappi í Reykjavík en næsta stóra mótið hjá honum er EM innanhúss í París sem fer fram fyrstu helgina í mars. Að sögn Þorsteins ætlar hann að bæta sig á því móti og Íslandsmetið innanhúss, sem Jón Arnar Magnússon á gæti því verið í hættu.
Rauðir og bláir brosandi HSÞ-bolir fást á kr. 1.000 ef hringt er í síma 895-3302. Bláu HSÞ-hlífðargallarnir, stakkur og buxur í stærðunum 120 - small fást á kr. 5.000 ef hringt er í síma 895-1070. Einnig nokkrir hvítir HSÞ-sokkar, 3 í pakka á kr. 1.500. Sömuleiðis bláar HSÞ-peysur á 7 - 10 ára á kr. 1.000.
Fresta varð Nóvembermóti HSÞ í frjálsíþróttum sem halda átti síðastliðinn laugardag á Húsavík, vegna ófærðar, þar sem m.a. Hófaskarð var lokað. En nú á að reyna aftur á sunnudaginn 21. nóvember. Líklegast er að móti byrji klukkan 13 en það verður auglýst um leið og mál skýrast.
Strax eftir mótið á sunnudaginn, eða kl. 16:00 verður haldinn foreldrafundur í Höllinni á Húsavík. Rætt verður um starfið og hvað er framundan. Vonumst til að sjá sem flesta foreldra.
Laugardaginn 13. nóvember n.k. fer fram Nóvembermót HSÞ í Íþróttahöllinni á Húsavík. Mótið hefst kl. 13 en HSÞ-fólk er vinsamlegast beðið um að mæta a.m.k. hálftíma fyrr til að undirbúa mótið og setja upp áhöld. Við þurfum 3-4 starfsmenn í hverja grein. Keppt verður í 5 greinum: 40 m hlaupi, kúluvarpi, hástökki, langstökki án atrennu og þrístökki án atrennu. Flokkarnir eru: 10 ára og yngri, 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17-18 ára. Mótið er opið öllum 18 ára og yngri. Tímaseðill og skráningar eru á mot.fri.is. Skráningarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 11. nóvember. Allir keppendur fá viðurkenningarskjal í lok keppni með besta árangri í hverri grein. Upplagt mót til að prófa í fyrsta sinn.
Munið skráningarfrestinn. Ath engin sjoppa á staðum.
Frekari upplýsingar hjá Rikku á Laugum sími 894-7609
Af gefnu tilefni minni ég hér með á vefsíðu sem frjálsíþróttakrakkar HSÞ eru með: www.123.is/hsth Þar setjum við inn fréttir, myndir, auglýsingar og aðrar upplýsingar. Kv. Vilborg
Nú er búið að opna fyrir skráningar á Unglingalandsmótið á Sauðárkróki. Keppt verður í frjálsum íþróttum, fótbolta, hestaíþróttum, mótorkrossi, golfi, körfubolta, sundi, skák og glímu. Friðrika Illugadóttir sér um að skrá keppendur HSÞ. Þeir sem hafa hug á því að skella sér á Sauðárkrók og keppa í einhverri af áðurnefndum greinum hafi samband við hana í síðasta lagi sunnudaginn 26. júlí. Hún er með síma 464-3175 & 894-7609 og netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Ekki bíða með skráningu fram á síðustu mínútu. Ef þið eruð ákveðin þá hafið samband sem fyrst. Skráningargjald er kr. 6.000,- á mann og greiðist í síðasta lagi mánudaginn 27. júlí inn á 1110-05-402252, kennitala 620169-4989. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.ulm.is.
Stjórn aksturssjóðs HSÞ auglýsir eftir umsóknum fyrir tímabilið janúar - maí 2009. Sjóðurinn styrkir ferðir barna á íþróttaæfingar á starfssvæði HSÞ sem nær frá Grenivík og austur á Bakkafjörð. Hér á síðunni má nálgast reglur sjóðsins og eyðublöð sem skilist útfyllt á skrifstofu HSÞ Stóragarði 8 640 Húsavík eða með tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 20. júlí
Velferðasjóður barna úthlutaði skólanum vænum styrk svo þátttökugjaldið hefur verið lækkað um helming. Kr. 10.000,- fyrir kennslu, fæði og húsnæði frá mánudegi til föstudags. Gerist ekki betra. Skráningarfrestur til 15. júní í síma 568-2929
Hafdís Sigurðardóttir HSÞ, tryggði sér silfurverðlaun í 400 metra hlaupi á smáþjóðaleikunum í gær, þegar hún hljóp á 58,39 sek. Hafdís varð í 7. sæti í langstökkskeppninni, stökk 5,46m í annari umferð og hætti síðan keppni til þess að geta keppt í 400 metra hlaupinu. (Tekið af vef Þingeyjarsveitar 123.is/641)
Upplýsingar um greinar koma vonandi sem fyrst inn á www.fri.is/motaforrit. Sennilega kúla, sleggja og spjót í aldursflokkum og langstökk, hástökk, 60 m hlaup og 100 m hlaup í karla og kvennaflokkum. Sjáumst vonandi sem flest :-). Brói og ráðið.
Vegna slæmrar veðurspár hefur Frjálsíþróttaráð HSÞ ákveðið að fresta mótinu sem átti að vera 14. mars n.k. Ný dagsetning auglýst síðar. (Það verður ekki helgina 21.-22. mars).
Níu keppendur frá HSÞ voru um síðustu helgi á Meistaramóti Íslands 11 til 14 ára í frjálsum íþróttum. Eins og þeirra er von og vísa stóðu þau sig með prýði
Nú styttist í Meistaramót 11-14 ára krakka í Laugardalshöll. Við brunum suður á föstudag, í einkabílum. Kostnaður kr. 700 greiðist til Rikku. Hún sér um að kaupa nesti til að hafa með í höllina. Munið eftir keppnisgöllum og skómog góða skapinu. Áfram HSÞ!!!
Frjálsíþróttadeild HSÞ verður með Bingó í sal Borgarhólsskóla sunnudaginn 8. feb. n.k. kl.14.00. Bingóspjaldið er á kr. 500 . Í hléi verða seldar veitingar: Kaffi kr. 100 , Svali kr. 100, Súkkulaðistykki kr. 100. Margir góðir vinningar í boði. Vonumst til að sjá sem flesta.
Þar voru 7 keppendur frá HSÞ: Aðalbjörg, Friðbjörn, Hafdís, Hildur Ásta, Hlöðver, Nanna og Selmdís. Hafdís sigraði í öllum sínum greinum: 60 m, 200 m, 400 m og langstökki. Hlöðver vann 60 m, var annar í langstökki og þriðji í 200 m. Glæsilegt! Til hamingju!HSÞ fékk 39 stig og endaði í 11. sæti. Frekari úrslit má sjá á mótaforriti FRÍ: mot.fri.is