Stórmóti ÍR lokið
Þá er þessari ferð lokið. Hún gekk í alla staði mjög vel. Takk fyrir samveruna, krakkar og Brói. Þið eruð mögnuð. Villa Sverris
Fórum af stað með rútu frá Rúnari kl. 14 á föstudag. Mývetningar og Laugakrakkar teknir upp í við Einarsstaði, UFA- og UMSE-fólk við Bogann á Akureyri. Komum á Farfuglaheimilið um kl. 22 eftir að hafa sett Eyfirðinga úr við Þróttheima. Börkur og Atli komu með flugi. Allir komnir í holu um hálf tólf. Vaknað kl. 7, morgunmatur og vallarnesti útbúið. Yngstu krakkarnir byrjuðu að keppa kl. 9. Brói, Börkur og Selmdís fóru með þeim upp í Laugardalshöll. Við hin röltum svo fljótlega uppeftir. Við dvöldum svo þar við keppni og áhorf til kl. 17:30. Krakkarnir drifu sig í sund á meðan ég verslaði og undirbjó kvöldmatinn. Selmdís kom svo sterk inn í eldamennskuna. Steikti hamborgara á tveimur pönnum. Þegar allir voru orðnir saddir og búið að ganga frá í eldhúsinu var farið í mæruna og svo slappað af um kvöldið. Allir komnir í rúm kl. 23:30. Upp kl. 7 um morguninn. Pakkað saman og farangurinn settur í geymslu. Keppni frá kl. 9 til 13. Góður tími tekinn í sundlauginni á eftir. Lestuðum rútuna áður en við fórum að horfa á Reykjavík International Games. Það mót var búið kl. 18 og þá drifum okkur í rútuna og brunuðum af stað heim. Matarstopp í Staðarskála. UFA-og UMSE-fólk fór úr við Bogann, Laugakrakkar og Mývetningar við Einarsstaði. Við komum heim til Húsavíkur upp úr hálf tvö.
Styrktaraðilar


Leit


