Stórmót ÍR
Við minnum á fri.is/motaforrit. Þar má sjá úrslit móta.
HSÞ-krakkar stóðu sig vel á Stórmótinu. Nokkur héraðsmet féllu og vonandi koma upplýsingar um það síðar. Atli kom, sá og sigraði á mótinu. Hann keppti í þremur greinum og vann þær allar með yfirburðum. Elvar vann 60 m grind, var 2. í hástökki, 3. í kúlu og 4. í langstökki. Ásgeir var 6. í kúlu og Bjarni Jón var 8. í 60 m hlaupi. Brynjar 5. í 60 m, Dagbjört 4. í 60 m og 60 m grindahlaupi, Þórný 6. í kúlu og 800 m hlaupi, Nanna 5.-6. í hástökki, Aðalbjörg 4. í kúlu, Hildur Ásta 5. í kúlu. Selmdís vann 1500 m, Hafdís vann 60 m og Valgerður var 3. í langstökki og 5. í 60 m hlaupi. Frekari úrslit og upplýsingar má sjá á fri.is/motaforrit.
Styrktaraðilar


Leit


