Ágætlega gekk á MÍ 11 til 14 ára.
Níu keppendur frá HSÞ voru um síðustu helgi á Meistaramóti Íslands 11 til 14 ára í frjálsum íþróttum. Eins og þeirra er von og vísa stóðu þau sig með prýði
. Þrír íslandsmeistaratitlar hlutust og var það Elvar Baldvinsson sem varð íslandsmeistari í hástökki og langstökki 12 ára stráka og Auður Gauksdóttir í kúluvarpi 12 ára stelpna. Auður varð líka í öðru sæti í hástökki. Dagbjört Ingvarsdóttir náði einnig öðru sætinu bæði í 60 metra hlaupi sem hún hljóp á 9,67 sek. og 60 metra grindahlaupi á 10,21 sek. en hvoru tveggja er bæting á héraðsmetum 13 ára telpna í viðkomandi greinum.
Aðrir þeir sem voru að keppa stóðu sig með miklum ágætum komust gjarnan í stigasæti, en gefin eru stig fyrir 10 efstu sætin. Keppendur í mótinu voru mjög margir og góður árangur að vera meðal efstu af tuttugu eða fleiri keppendum og í sumum tilfellum voru keppendur yfir fjörutíu í grein.
Öllum keppendum er þökkuð þátttakan enda stóðu þau sig með miklum ágætum og gerðu sitt besta. Mótið var því hið besta og HSÞ liðið sér og sínum til sóma.
Stefán Jónasson

Styrktaraðilar

Leit