Frjálsar í febrúar.
Eins og þeir vita sem eitthvað fylgjast með frjálsíþróttaiðkan þá eru janúar og febrúar þeir mánuðir sem innanhúss tímabilið stendur sem hæst
. Þrjú stór mót í eldri flokkum voru í febrúar en það voru MÍ 15 til 22 ára, Meistaramót Íslands aðalhluti og Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum. HSÞ átti fulltrúa á öllum þessum mótum og er óhætt að segja að þau hafi öll staðið sig með miklum sóma.
MÍ 15 til 22 var nú raunar um mánaðarmótin janúar febrúar en á því móti voru sjö keppendur frá HSÞ. Árangur varð nokkuð samkvæmt vonum og flestir að bæta sinn besta árangur eða voru nærri sínu besta. Það verður þó að segjast að öðrum keppendum ólöstuðum að Hlöðver Stefán Þorgeirsson og Hafdís Sigurðardóttir báru verulega af. Til HSÞ liðsins komu fimm íslandsmeistaratitlar og átti Hafdís fjóra af þeim og Hlöðver einn, en hann vann í 60 m. hlaupi 15 - 16 ára sveina. Auk þess varð hann annar í langstökki og þriðji í 200 metra hlaupi.
Hafdís sem er í dag ein af bestu frjálsíþróttakonum landsins vann allar þær greinar sem hún tók þátt í á mótinu. Hún varð því íslandsmeistari ungkvenna í 60 m hlaupi, 200 m hlaupi, 400 m. hlaupi og í langstökki. Í 60 m hlaupinu var hún einnig að jafna héraðsmetið sem hún setti 18. janúar en þá hljóp hún á 7,91 sek og endurtók það í þessu sinni.
Árangur annarra keppenda verður ekki tíundaður hér en sem fyrr segir voru allir að standa sig vel og víst að þau gerðu sitt besta.
Meistaramót Íslands aðalhluti var svo dagana 7. og 8. febrúar og voru þar tveir keppendur frá HSÞ þau Friðbjörn Bragi Hlynsson og Hafdís Sigurðardóttir og eins og við var að búast stóðu þau seg með prýði. Hafdís bætti við þarna við íslandsmeistaratitlum í 200 m. og 400 m. hlaupum og varð önnur í langstökkinu. Það er því óhætt að segja að hún hafi gert það gott í þessu móti ekki síður en fyrri mótum ársins þó ekki hafi fallið nein met að þessu sinni.
Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum var svo 21 febrúar en í það mættu norðlendingar með sameiginlegt lið. Þrír keppendur frá HSÞ, þau Hafdís Sigurðardóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson og Selmdís Þráinsdóttir, voru í þessu liði sem saman stóð af fólki úr röðum fjögurra sambanda, HSÞ, UFA, UMSE og UMSS. Hverjum keppenda er aðeins heimilt að taka þátt í tveim greinum auk boðhlaupa og er skemmst frá því að segja að Hafdís vann báðar þær greinar sem hún keppti í. Þær greinar sem hún tók þátt í voru 200 m hlaup þar sem hún hljóp á 25,33 og bætti þar eigið héraðsmet hin greinin sem hún vann var langstökk en auk þess var hún í sigursveit Norðurlands í 4 x 400 m boðhlaupi. Sigurbjörn og Selmdís skiluðu sínu eins og við var að búast og stóðu sig með ágætum og höluðu inn nokkur stig fyrir lið Norðurlands sem varð í þriðja sæti í keppninni.
Síðustu helgina í febrúar það er 28. feb. og 1. mars tók Hafdís svo þátt í Opna-Danska Meistaramótinu og verður ekki annað sagt en að hún hafi þar verið að standa sig vel að vanda og sem endranær til sóma bæði landinu og íþróttinni. Þrátt fyrir að lítið eitt vantaði á að hún væri að ná sínu allra besta þá náði hún í þriðja sæti bæði í 200 m hlaupi og langstökki og varð í fjórða sæti í 60 m. hlaupi.
Allt HSÞ liðið hefur nú í vetur verið að gera góða hluti þó vissulega mætti það vera fjölmennara þá er þarna góður efniviður. Það er þó tæplega á nokkurn hallað þó sagt sé að Hafdís sé stjarna okkar hjá HSÞ um þessar mundir og um leið í fremstu röð íslenskra frjálsíþrótta kvenna.
Hér verður látið lokið þessum pistli um frjálsar í febrúar og vonandi finnst flestum að allrar sanngirni hafi verið gætt í umfjöllun. Að lokum vil ég aðeins segja ,,íþrótt eflir alla dáð", gangi ykkur öllum vel. Áfram HSÞ!
Stefán Jónasson

Styrktaraðilar

Leit