Æfingamóti lokið
Æfingmótið tókst bara ágætlega
Siggi stormur var búinn að spá bongóblíðu en það gekk ekki alveg eftir. Heldur mikill vindur var í bakið á hlaupurum og langstökkvurum. En krakkarnir bættu árangur sinn í ýmsum öðrum greinum. Auður Gauks bætti sig kúlu, spjóti og hástökki, Elvar bætti sinn árangur í spjóti og Dagbjört í langstökki en fékk heldur mikinn meðvind. Mögulega voru fleiri að bæta sig og bið ég þá að senda mér upplýsingar um það á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Ari kom með nokkra keppendur frá UMSE. Þeir kepptu m.a. í sleggjukasti. Gaman að því og þökkum við þeim fyrir komuna.
Með kveðju, Villa
Með kveðju, Villa
Styrktaraðilar


Leit


