Nóvembermót HSÞ í frjálsum íþróttum 18 ára og yngri
Laugardaginn 13. nóvember n.k. fer fram Nóvembermót HSÞ í Íþróttahöllinni á Húsavík. Mótið hefst kl. 13 en HSÞ-fólk er vinsamlegast beðið um að mæta a.m.k. hálftíma fyrr til að undirbúa mótið og setja upp áhöld. Við þurfum 3-4 starfsmenn í hverja grein.
Keppt verður í 5 greinum: 40 m hlaupi, kúluvarpi, hástökki, langstökki án atrennu og þrístökki án atrennu.
Flokkarnir eru: 10 ára og yngri, 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17-18 ára. Mótið er opið öllum 18 ára og yngri.
Tímaseðill og skráningar eru á mot.fri.is.
Skráningarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 11. nóvember.
Allir keppendur fá viðurkenningarskjal í lok keppni með besta árangri í hverri grein. Upplagt mót til að prófa í fyrsta sinn.
Munið skráningarfrestinn. Ath engin sjoppa á staðum.
Frekari upplýsingar hjá Rikku á Laugum sími 894-7609




