Nóvembermóti HSÞ frestað
Fresta varð Nóvembermóti HSÞ í frjálsíþróttum sem halda átti síðastliðinn laugardag á Húsavík, vegna ófærðar, þar sem m.a. Hófaskarð var lokað.
En nú á að reyna aftur á sunnudaginn 21. nóvember. Líklegast er að móti byrji klukkan 13 en það verður auglýst um leið og mál skýrast.
Strax eftir mótið á sunnudaginn, eða kl. 16:00 verður haldinn foreldrafundur í Höllinni á Húsavík. Rætt verður um starfið og hvað er framundan.
Vonumst til að sjá sem flesta foreldra.
Nóvembermót HSÞ í Íþróttahöllinni á Húsavík. HSÞ-fólk er vinsamlegast beðið um að mæta a.m.k. hálftíma fyrr til að undirbúa mótið og setja upp áhöld. Við þurfum 3-4 starfsmenn í hverja grein.
Keppt verður í 5 greinum: 40 m hlaupi, kúluvarpi, hástökki, langstökki án atrennu og þrístökki án atrennu.
Flokkarnir eru: 10 ára og yngri, 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17-18 ára. Mótið er opið öllum 18 ára og yngri.
Tímaseðill og skráningar eru á mot.fri.is.
Skráningarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 18. nóvember.
Allir keppendur fá viðurkenningarskjal í lok keppni með besta árangri í hverri grein. Upplagt mót til að prófa í fyrsta sinn.
Munið skráningarfrestinn. Ath engin sjoppa á staðum.
Frekari upplýsingar hjá Rikku á Laugum sími 894-7609




