Þorsteinn og Hafdís á fyrsta móti ársins
Þorsteinn Ingvason og Hafdís Sigurðardóttir mættu fersk til leiks á Reykjavík International games í Reykjavík um síðustu helgi. Þau sigruðu bæði í langstökki, Þorsteinn með stökki upp á 7,65m og Hafdís með stökki upp á slétta 6 metra. Hún náði svo öðru sæti í 60 m hlaupi.
Góð byrjun sem lofar góðu um framhaldið.
Til hamingju Þorsteinn og Hafdís og gangi ykkur vel :)
Þetta stökk Þorsteins er næstlengsta stökk Íslendings frá upphafi, en ekki vantaði nema 17 cm uppá að bæta þann árangur. Þorsteinn er með 19. besta árangurinn í langstökki á árinu á heimslistanum, sem er einnig 10. besti árangurinn í Evrópu og sá besti á Norðurlöndum í karlaflokki.
Þorsteinn æfir nú af kappi í Reykjavík en næsta stóra mótið hjá honum er EM innanhúss í París sem fer fram fyrstu helgina í mars. Að sögn Þorsteins ætlar hann að bæta sig á því móti og Íslandsmetið innanhúss, sem Jón Arnar Magnússon á gæti því verið í hættu.




