Frá frjálsíþróttaráði HSÞ
Á nýbyrjuðu ári er vert að líta um öxl og gera upp liðið frjálsíþróttaár. HSÞ sendi keppendur á flest öll Meistaramót Íslands bæði utanhúss og innanhúss. Flestir keppendur voru á yngri meistaramótunum. En við búum vel að eiga góðar fyrirmyndir í "reyndari" keppendum samanber Þorstein Ingvarsson, Hafdísi Sigurðardóttir og Sigurbjörn Árna Arngrímsson. Þau kepptu á Meistaramótum Íslands utan- og innanhúss og unnu til verðlauna, oftar en ekki gullverðlauna. Þau kepptu í Evrópubikarkeppni í frjálsum sem haldið var á Möltu. Þar stökk Þorsteinn 7,79 í langstökki og náði þar með lágmarki til að keppa á EM í Barcelona. Frábærir fulltrúar HSÞ sem við getum verið stolt af. Bæði Þorsteinn og Hafdís hafa einnig verið dugleg að mæta á Héraðsmót HSÞ og því líka fyrirmyndir í nærmynd. Sigurbjörn Árna fengum við til að vera aðalþjálfara í Frjálsíþróttaskóla UMFÍ sem haldinn var á Laugum í vor...
Atli Barkarson og Auður Gauksdóttir.Af yngri keppendum okkar fóru í upphafi árs 12 keppendur á Stórmót ÍR í Laugardalshöll. Þar unnu okkar keppendur til 10 verðlauna, 5 gull, 2 silfur og 3 brons. Góð byrjun á árinu. Á Meistaramóti Íslands 11-14 ára í Laugardalshöll fóru 11 keppendur og unnu þau til 4 gullverðlauna og 4 silfurverðlauna. Mörg þeirra settu héraðsmet eða bættu sinn eiginn árangur.
Meistaramót Íslands 11-14 utanhúss fór fram í Kópavogi og áttum við þar 7 keppendur. Dagbjört varð tvöfaldur íslandsmeistari, bæði í langstökki og 80 m grindahlaupi. Dagbjört var svo valin í úrvalshóp FRÍ í haust með árangri sínum í 80 m grindahlaupi. Selmdís Þráinsdóttir var einnig valin í úrvalshóp FRÍ í desember í stangarstökki. Glæsilegt hjá þessum stelpum og bara gaman að þessu.
HSÞ heldur fjögur mót yfir árið; tvö mót innanhúss í mars og nóvember og svo Sumarleika í júní og Héraðsmót í ágúst. Í ár var enginn undantekning á því og voru um 50-60 þátttakendur á innanhúss mótunum, sem að þessu sinni voru allir keppendur frá HSÞ. Sumarleikar HSÞ er langstærsta mótið sem er haldið hjá okkur. Á síðasta móti voru yfir 150 keppendur frá ýmsum félögum ásamt HSÞ s.s. UMSE, UMSS, UFA, UÍA, ÍR, UMSB og Selfossi. Frábært að hafa svo stórt og gott mót fyrir félagið. Í sumar héldum við Bikarkeppni FRÍ 16 ára og yngri og tókst það með ágætum í frekar vindasömu veðri. Ungt lið HSÞ varð í 8. sæti.
HSÞ átti 31 keppanda í frjálsum á Unglingalandsmótinu sem haldið var í Borgarnesi. Enginn unglingalandsmótsmeistari varð í ár en krakkarnir unnu til 13 silfur og bronsverðlauna ásamt því að eiga silfur- og bronsverðlaunasveitir í boðhlaupi. Ekki spillti fyrir að HSÞ (sem átti einnig keppendur í knattspyrnu, mótorcrossi, sundi, glímu og skák) var valið fyrirmyndarfélag mótsins og fékk bikar til varðveislu í eitt ár. Héraðsmótið í ágúst var haldið í kalsaveðri og var frekar fámennt. Þar er alltaf keppt um bikar fyrir besta árangur hjá stelpum og strákum. Í ár fékk Auður Gauksdóttir bikar fyrir árangur í hástökki og Atli Barkarson fyrir langstökk.
Hér höfum við stiklað á því helsta sem var að gerast í frjálsum í sumar. Til þess að hægt sé að halda áfram með gott frjálsíþróttastarf biðjum við ykkur að hugsa til okkar þegar dagatal Frjálsíþróttaráðs HSÞ kemur inn um lúguna um þessar mundir.
Með þökk fyrir stuðning.
Frjálsíþróttaráð HSÞ

Styrktaraðilar

Leit