Góð ferð til Gautaborgar
Þorsteinn Ingvarsson og Hafdís Sigurðardóttir kepptu á sterku frjálsíþróttamóti, Road to Göteborg 2013, sem fram fór í Gautaborg á laugardaginn. Þorsteinn sigraði í langstökki með 7,47 m. Hann gerði hárfínt ógild stökk upp á 7,80 m og 7,90 m, en lágmark á EM innanhúss sem fram fer í næsta mánuði í París er 7,75 m.
Hafdís tvíbætti sig í 60 m hlaupi, hljóp á 7,88 í undanúrslitum og komst þar með í A-úrslit. Þar bætti hún sig aftur er hún hljóp á 7,86. Hún bætti um leið héraðsmetið sitt í tvígang.
Hún varð svo í 2. sæti í langstökki með 5,71 en segist eiga mikið inni. Og skemmtilegt er að segja frá að þetta gerðist á afmælisdaginn hennar!
Næst á dagskrá hjá krökkunum er Bikarkeppni FRÍ um næstu helgi, þar sem Norðurland mætir með sameinað lið.
Styrktaraðilar


Leit


