Norðurland í öðru sæti
Bikarkeppni FRÍ innanhúss var haldin í Laugardagshöll á laugardaginn, þann 19. febrúar s.l. Lið Norðurlands varð í öðru sæti í samanlögðu með 103,5 stig. Lið ÍR sigraði með 133 stig en lið HSK varð í þriðja sæti einnig með 103,5 stig. Þar sem Norðurland var með fleiri sigurvegara hlaut það annað sætið. Munaði þar mestu um sigur Hafdísar Sigurðardóttur í 60 m hlaupi og langstökki. Hafdís hljóp 60 m á 7,85 sek. og stökk 5,95 m í langstökki.Þorsteinn Ingvarsson keppti í langstökki og varð annar með stökk upp á 7,51 m. Selmdís Þráinsdóttir varð fimmta í stangarstökki með stökk upp á 2,70 og Auður Kristjánsdóttir varð 6 í 1500 m hlaupi en það hljóp hún á 5:16,75.
Nánar um úrslitin má sjá á heimasíðu FRÍ www.fri.is
Styrktaraðilar


Leit


