Góður hópur á MÍ 11-14 ára
Meistaramót Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum var haldið í Laugardagshöll síðustu helgina í febrúar. Ellefu keppendur frá HSÞ mættu til leiks og kepptu í hinum ýmsu greinum. Það voru þau Elvar, Brynjar, Freyþór, Auður, Brynja, Bjargey, Hlynur, Hafdís, Dagný, Eyþór og Arnhildur.
Keppendur stóðu sig mjög vel og voru til fyrirmyndar í einu sem öllu. Þau unnu til sjö verðlauna og HSÞ varð í 8. sæti í stigakeppninni (af 18 liðum) með 135,5 stig.
Þetta kemur fram á síðunni 123.is/hsth og þar má sjá myndir frá mótinu.
Nánar um úrslitin má sjá á www.fri.is.
Á meðfylgjandi mynd eru keppendur ásamt þjálfara sínum, Bróa. Auði vantar á myndina.
Til hamingju með þetta krakkar!
Styrktaraðilar


Leit


