Bæting og brons hjá Hafdísi
Hafdís Sigurðardóttir félagi okkar í HSÞ var í landsliði Íslands sem keppti á Smáþjóðaleikum í Lichtenstein á dögunum. Þar keppti hún í 100 m hlaupi og langstökki. Hún bætti sig í báðum greinunum og það skilaði henni bronsi í langstökkinu. Glæsilegt!
Sjáum hér frásögn Hafdísar af keppninni:
1. júní keppti ég í undanrásum í 100m hlaupi kvenna - var önnur í riðlinum á tímanum 12.26 sek sem hefði verið bæting, en vindurinn var aðeins of mikill eða +2.1m/s.
En þessi tími kom mér inn í úrslit í sjötta og síðasta sæti inn.
Úrslitin voru seinna um daginn í rigningu og kulda miðað við veður dagana á undan, bara ekta íslenskt veður. Hljóp úrslitin á 12.15 sek og vindur var +1.8m/s og löglegt hlaup - endaði í 6. sæti og bætti minn persónulega árangur úr 12.48 sek í 12.15sek.
Keppti aftur 3. júní í langstökki, átti frábæra stökkseríu, endaði í 3. sæti með stökk uppá 6.09m (vindur +0,6m/s), lögleg bæting.
4. júní keppti ég í 4x100m boðhlaupi, hljóp annan sprett með íslensku sveitinni og fengum við brons, hlupum á 47.09 sek en Kýpur sveitin sem var í öðru sæti var á tímanum 47.08sek!

Styrktaraðilar

Leit