Hafdís með besta afrek í kvennaflokki á MÍ !
Meistaramót Ísland fór fram helgina 22. - 24. júlí í sumar. Hafdís Sigurðardóttir keppti fyrir hönd HSÞ og stóð sig verulega vel og er Héraðssambandinu til mikils sóma. Hafdís sigraði þrefalt; í 100m og 200m hlaupi og einnig í langstökki. Ekki skal það því koma okkur á óvart að Hafdís var með besta afrek mótsins í kvennaflokki, en hún hljóp 100m hlaupið á 11,96 sek., sem gefa 1020 stig. Í karlaflokki var það Kristinn Torfason í FH sem fékk flest stig fyrir 7.82m í langstökki. Því miður fæst þessi góði árangur þó ekki viðurkenndur, þar sem meðvindur mældist of mikill.
Annars var það lið FH sem sigraði nokkuð örugglega í stigakeppni Meistaramótsins, en liðið sigraði bæði
stigakeppni í karla- og kvennaflokki. FH-ingar hlutu samtals 34.634 stig. ÍR sem varð í öðru sæti hlaut samtals 23.969 stig, en lið HSK/Umf. Selfoss varð í þriðja sæti með 20.129 stig.




