Meistaramót Íslands í glímu, 2. umferð, verður haldið laugardaginn 12. nóvember kl. 11:30 á Laugum.
Mótið verður haldið í íþróttahúsinu á Laugum í Reykjadal. Glímustjóri verður enginn annar en Arngrímur Geirsson og glímukynnir sjálfur Eyþór Pétursson. HSÞ hvetur alla Þingeyinga, búsetta allt frá Grenivík austur í Bakkafjörð, til að fjölmenna á þetta mót. Það gefast ekki mörg tækifærin til þess að berja þessa þjóðaríþrótt okkar Íslendinga augum.
HSÞ hefur boðið upp á glímuæfingar í íþróttahúsinu á Laugum í Reykjadal í vetur. Æfingarnar eru á þriðjudögum milli kl. 16-17. Þjálfararnir eru glímukóngarnir Arngeir Friðriksson, Arngrímur Jónsson og Pétur Þórir Gunnarsson. Æfingarnar eru opnar öllum áhugasömum. Tíðindamaður heimasíðunnar 641.is leit við á glímuæfingu í íþróttahúsinu á Laugum á dögunum, en þá voru nokkrar ungar stúlkur á glímuæfingu. Full ástæða er til þess að hvetja alla áhugasama um glímuíþróttina til að nýta sér glímuæfingarnar á Laugum undir öruggri handleiðslu Arngeirs, Péturs og Arngríms. Þeir félagar kunna öll brögðin út í gegn. Á myndinni eru Erla Ingileif Harðardóttir og Hugrún Birta Kristjánsdóttir að glíma. Arngeir Friðrkisson glímukóngur segir þeim til og kennir réttu brögðin. Mynd: Hermann Aðalsteinsson.
Bikarglíma Íslands fór fram í Reykjavík 19. febrúar sl. Þrír Mývetningar tóku þátt í glímunni. Bjarni Þór Gunnarsson sigraði í flokki unglinga -90 kg og Einar Eyþórsson varð í 4. sæti í sama flokki. Hann varð síðan í 3. sæti í flokki karla -90 kg. Pétur Þórir Gunnarsson varð í 2. sæti í +90 kg. flokki. Í opnum flokki karla varð Bjarni Þór í þriðja sæti og Pétur Þórir í því fimmta.
Ársþing GLÍ var haldið á laugardaginn, 19. mars í Reykjavík. 42 fulltrúar frá 8 héraðssamböndum og íþróttabandalögum áttu seturétt á þinginu. Fulltrúi HSÞ á þinginu var Jóhanna S. Kristjánsdóttir formaður HSÞ. Að sögn hennar var þingið friðsælt og skemmtilegt og engin stór mál til umfjöllunar. Ólafur Oddur Sigurðsson var endurkjörinn formaður Glímusambandsins. Sigmundur Stefánsson gjaldkeri til tólf ára gekk úr stjórn, en hann skilaði reikningum sem sýna góðan rekstur og stöðu.
Glímuæfingar verða í íþróttahúsinu á Laugum í Reykjadal á þriðjudögum kl. 16-17.
Fyrsta æfing verður 5. október. Þjálfarar eru Arngeir Friðriksson, Arngrímur Jónsson og Pétur Þ. Gunnarsson. Æfingarnar eru opnar öllum.
Æfingabúðir í glímu verða á Laugum 2. -3. október undir handleiðslu Péturs Þóris Gunnarssonar og Ólafs Odds Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Glímusambands Íslands. Æfingabúðirnar eru fyrir nemendur í 9.-10. bekk grunnskóla og upp í 20 ára. Æfingabúðirnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu, en þátttakendur þurfa að sjá sér fyrir fæði. Gist verður í Litlulaugaskóla. Skráning fer fram á:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna S. Kristjánsdóttir, formaður HSÞ í síma: 894-4247.
Þriðja og síðasta umferðin í Meistaramóti Glímusambansins fór fram um helgina á Laugarvatni. Þingeyingar voru sigurvegarar mótsins, en þeir sigruðu mótið með 136 stigum