Til hamingu með góðann árangur í glímunni!
Þriðja og síðasta umferðin í Meistaramóti Glímusambansins fór fram um helgina á Laugarvatni. Þingeyingar voru sigurvegarar mótsins, en þeir sigruðu mótið með 136 stigum
en næst kom KR með 87 stig. Okkar lið sigraði í fjórum flokkum af sjö í einstaklingskeppninni og auk þess þrjá af fjórum í liðakeppninni. Soffía Björnsdóttir sigraði opna kvennaflokkinn með 4,5v og varð í 2. sæti í kvennaflokki +65 kg. með 3,5+0v. Sylvía Ósk Sigurðardóttir vann svo -65 kg. Kvennaflokkinn með 2,5v. Stórglæsilegur árangur hjá stúlkunum okkar. Í opna karlaflokknum áttum við þrjá pilta sem voru að næla í stig. Ólafur Helgi Kristjánsson varð í 3. sæti með 4,5v, Jón Smári Eyþórsson í 4. sæti með 4v ogPétur Þórir Gunnarsson í því 6. með 3v. Í karlaflokki +85 kg varð svo Jón Smári í 3. sæti með 3v og Ólafur Helgi í því 4. með 2,5v. Í karlaflokki -85 kg. varð Arngeir Friðriksson í 2 sæti með 4v og síðan vann Pétur Þórir unglingaflokkinn með 3v.
Lokastaðan á Meistaramótinu varð því sú að stúlkurnar unnu alla kvennaflokkana. Soffía vann opna kvennaflokkinn með 16 stigum og einnig konur +65 kg. með 15 stigum. Sylvía Ósk vann -65 kg. flokkinn með 18 stigum. Pétur Þórir, Ólafur Helgi og Jón Smári voru í 3., 4. og 5. sæti í opna karlaflokknum með 9, 8 og 7 stig. Jón Smári varð 2. í +85 kg. flokki karla með 13 stig og Ólafur Helgi í því 4. með 7 stig. Arngeir varð í 2. sæti í -85kg. flokki karla með 16 stig og munaði einungis einu stigi á honum og Pétri Eyþórssyni sem vann flokkinn. Pétur Þórir Gunnarson vann unglingaflokkinn með glæsibrag, fékk 18 stig, fimm stigum ofar en sá sem næstur honum kom.
Þetta er stórglæsilegur árangur hjá glímuliðinu okkar og óskum við þeim innilega til hamingu með þetta. Þau eiga framtíðina fyrir sér.

Styrktaraðilar

Leit