Glímumót um helgina
Það er í nógu að snúast hjá glímumönnum um helgina. Glímuþing í dag, föstudag og tvö mót um helgina
Það er í nógu að snúast hjá glímumönnum um helgina.
Á morgun föstudaginn 12. mars fer ársþing GLÍ fram í íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst þingið kl. 17:00. Mörg athyglisverð mál liggja fyrir þinginu og er hægt að sjá öll þingskjölin á heimasíðu Glímusambandsins, www.glima.is.
Á laugardaginn, 13. mars, fer Grunnskólamót GLÍ fram í íþróttahúsi Hagaskóla og hefst keppni kl. 14:30. Góð þátttaka er í mótinu en búast má við að keppendur verði á milli 80-90. Keppt er í 5.-10. bekk. Strax að loknu Grunnskólamótinu fer Öldungamót GLÍ fram en keppendur þurfa að hafa náð 35 ára aldri.
Á sunnudaginn, 14. mars, fer Íslandsmót yngri flokkanna (11-16 ára) fram í íþróttahúsi Hagaskóla og hefst keppni kl. 10:00. Keppendur verða á bilinu 80-90.
Keppendur koma frá HSK, UÍA, HSÞ, GFD, KR og Ármanni. Mótinu líkur um kl. 13:00.

Styrktaraðilar

Leit