Hælkrókur, leggjarbragð og systrabylta
HSÞ hefur boðið upp á glímuæfingar í íþróttahúsinu á Laugum í Reykjadal í vetur. Æfingarnar eru á þriðjudögum milli kl. 16-17. Þjálfararnir eru glímukóngarnir Arngeir Friðriksson, Arngrímur Jónsson og Pétur Þórir Gunnarsson. Æfingarnar eru opnar öllum áhugasömum. Tíðindamaður heimasíðunnar 641.is leit við á glímuæfingu í íþróttahúsinu á Laugum á dögunum, en þá voru nokkrar ungar stúlkur á glímuæfingu.
Full ástæða er til þess að hvetja alla áhugasama um glímuíþróttina til að nýta sér glímuæfingarnar á Laugum undir öruggri handleiðslu Arngeirs, Péturs og Arngríms.
Þeir félagar kunna öll brögðin út í gegn.
Á myndinni eru Erla Ingileif Harðardóttir og Hugrún Birta Kristjánsdóttir að glíma. Arngeir Friðrkisson glímukóngur segir þeim til og kennir réttu brögðin.
Mynd: Hermann Aðalsteinsson.




