Íslandsglíman og Freyjuglíman
Íslandsglíman og Freyjuglíman fóru fram um helgina í íþróttahúsi Víkings. Alls átti HSÞ fimm keppendur í þessum tveimur mótum.
Íslandsglíman og Freyjuglíman fóru fram um helgina í íþróttahúsi Víkings. Í Íslandsglímunni er keppt um Grettisbeltið og áttum við þrjá keppendur af sjö að þessu sinni. Arngeir Friðriksson lenti í fjórða sæti með 3,5 vinninga en þeir Magnús Þorri Jónsson og Jón Smári Eyþórsson urðu í 5-7 sæti með 1 vinning hvor. Í Freyjuglímunni er keppt um Freyjumenið og þar áttum við tvo keppendur. Soffía Kristín Björnsdóttir kom frá Danmörku til að keppa og lenti hún í þriðja sæti með 3 vinninga og Inga Gerða Pétursdóttir í fimmta sæti með tvo vinninga. Nánari upplýsingar á www.glima.is
Styrktaraðilar


Leit


