Héraðssamband Þingeyinga óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Um er að ræða hlutastarf. Starfið er krefjandi, en jafnframt fjölbreytt og líflegt. Framkvæmdastjóri þarf að geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og hafa góða framkomu. Þekking á starfi ungmennafélagshreyfingarinnar er góður kostur, en ekki nauðsyn. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2011. Skriflegri umsókn með upplýsingum um fyrri störf, menntun og reynslu skal skila til skrifstofu HSÞ, Stóragarði 8, 640 Húsavík, fyrir 1. mars 2011. Umsóknir má einnig senda í tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
fyrir sama tíma. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu HSÞ í síma 464-3107 eða 895-3302.
Aksturssjóður HSÞ styrkir foreldra sem þurfa að keyra börn og unglinga á æfingar milli félagssvæða innan starfssvæðis HSÞ. Við hvetjum foreldra og hópa að kynna sér reglur sjóðsins og sækja um styrki.
HSÞ var einn af þeim aðilum sem fékk styrk frá KEA að þessu sinni. Styrkurinn er til kaupa á kids athletic tösku en í henni er búnaður sem notaður er í nýu fræðslukerfi alþjóða frjálsíþróttasambandsins.
Sjá umfjöllun tekin af heimasíðu Umfí.
Kids Athletics er fyrsta stig af fimm í nýju fræðslukerfi Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, IAAF, fyrir þjálfara og FRÍ hefur tekið upp á sína arma og heitir á ensku Coaches Education Cerfification System (CECS). Fyrsta stigið er einkum ætlað þjálfurum barna og unglinga 12 ára og yngri. Næsta stig er ætlað félagsþjálfurum en hin síðari eru sérhæfðari og ætluð þeim sem lengra eru komin.
Fyrsta stigið, sem kallast Kids Athletics eða Krakkafrjálsar, byggir á blöndu íþrótta við leiki og miðar að því að gefa öllum þátttakendum að reyna sig og vera með, samhliða sem þau fá góða þjálfun. Það er m.a. gert með því að kröfur til þátttakenda eru lagaðar að getu hvers og eins.
Þátttakendum er skipað í hópa sem keppa sín í milli, ein liðsmenn þurfa líka að leggja sig fram fyrir sitt lið þar sem frammistaða allra telur með. Þetta er því e.k. sambland af einstaklings- og liðakeppni sem gerir þátttöku áhugaverða og skemmtilega fyrir hvern og einn. Samhliða er lögð áhersla á að styrkja félagsleg tengsl á milli barnanna, þar sem börnin sjálf geta tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd keppninnar og æfinga.
Aðrir styrkþegar úr þingeyjarsýslu voru eftirtaldir:
Magni Grenivík,Til að koma upp fótboltavelli. Völsungur á Húsavík,Til að efla forvarnir meðal ungra íþróttaiðkenda. Elsa B Skúladóttir Til skíðaþjálfunar fatlaðra. ÚÁT ungmenna hús á Húsavík. Til að standa fyrir menningarviðburðum.
Þingeyskur sagnagarður - Til útgáfu á þingeysku sagnakveri. Kristín María Hreinsdóttir - Vegna viðhalds á Ljósavatnskirkju.
Hermann R. Herbertsson og Jón Aðalsteinn Hermannsson, Til að gefa út Fnjóskdælasögu.
Fræðafélag um forystufé - Til uppbyggingar fræðaseturs um forystufé.
Nánar um úthlutun KEA á heimasíðu félagsins kea.is
KEA og HSÞ skrifuðu undir samstarfssamnning á dögunum. Undirskriftin fór fram að Laugum í Reykjadal við sama tækifæri og ný heimasíða sambandsins var opnuð. Samningur er til eins árs og gerir KEA að einum af aðalstyrktaraðilum HSÞ. KEA hefur í gegn um árin verið Héraðssambandinu öflugur bakhjarl og er þessi samningur framhald af fjögurra ára samningi sem KEA og HSÞ undirrituðu í aðdraganda unglingalandsmótsins sem hvaldið var að Laugum 2006. Stjórn HSÞ þakkar KEA stuðninginn.
Við ítrekum að umsóknarfrestur í Aksturssjóð HSÞ fyrir tímabilið sept-des 2008 er til 10. mars næstkomandi. Reglugerð og umsóknareyðublað fyrir Aksturssjóðinn er að finna hér til vinstri undir liðnum Reglugerðir > Aksturssjóður sem og neðan við fréttirnar á forsíðunni
Þinggerð framhaldsstofnþings Héraðssambands Þingeyinga, sem haldið var í Skjólbrekku í Mývatnssveit 12. apríl 2008, er nú aðgengileg hér á vefnum. Þingggerðina má nálgast á forsíðu en einnig hér: Þinggerð 2008