Ársþing HSÞ 2009
Ársþing HSÞ var haldið á Þórshöfn 2. maí s.l
Ársþing Héraðssambands Þingeyinga, HSÞ, var haldið á Þórshöfn 2. maí s.l. Arnór Benónýsson var kjörinn áfram formaður til eins árs. Þrjár breytingar urðu í stjórn sambandsins en úr stjórn gengu Einar Ingi Hermannsson, Jóhann Rúnar Pálsson og Linda Baldursdóttir. Inn stjórn komu Gunnar Sigfússon, Ágústa Ágústsdóttir og Ingvar Helgi Kristjánsson.
Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFí, sæmdi á þinginu Sölva Stein Alfreðsson starfsmerki UMFÍ.
Íþróttamaður ársins hjá HSÞ var kjörin Hafdís Sigurðardóttir.
,,Það var ákveðið að slípa betur sameiningu HSÞ og UNÞ og láta hana virka betur. Í starfinu hjá okkur á þessu ári ber hæst þátttaka okkar í Landsmótinu á Akureyri og Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki. Það er annars nóg um að vera í okkar starfi og við erum bjartsýnir á framhaldið," sagði Arnór Benónýsson, formaður HSÞ.
(Tekið af vef UMFL, Þórshöfn)

Styrktaraðilar

Leit